Miðdeild
5.-7. júní 2026
Miðdeild Fiðlufjörs er fyrir fiðlunemendur sem hafa lokið grunnprófi í fiðluleik og eru á miðstigi.
Allir nemendur í fiðluleik eru velkomnir bæði hefðbundnir fiðlunemendur, suzuki nemendur og aðrar kennsluaðferðir.
Fyrir nemendur sem eru í Suzuki námi er þessi deild fyrir nemendur sem eru í bók 5, bók 6, bók 7 og bók 8.
Á námskeiðinu fá nemendur Miðdeildar:
-
Hóptíma og samspil
-
Tónlistarsmiðjutíma í þjóðlögum
-
Tónlistarsmiðjutíma í Brasilískri tónlist
-
Uppbrotstíma
-
Þjóðdanstíma
-
Spila á lokatónleikum hátíðarinnar
Kennarar Miðdeildar:
Chrissie Telma Guðmundsdóttir
Diljá Sigursveinsdóttir
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir
Sólrún Gunnarsdótir
Vegar Vårdal
Þjóðdansfélag Reykjavíkur
Miðdeildin hefst:
kl. 13:00 þann 5. júní í húsnæði Grunnskólans í Hveragerði.
Helgarplanið frá sirka kl. 9:00/10:00 - kl. 15:00/16:00.
Sumir dagar verða lengri eða styttri, en nánari dagskrá kemur síðar í maí 2026.







