top of page

Fiðlufjör verður haldið í áttunda sinn dagana 5.-7.júní 2026 í blómabænum Hveragerði.

​Hátíðin að þessu sinni verður enn fjölbreyttari og með breyttu sniði en síðustu ár en markmiðið er ennþá fyrst og fremst að koma saman, spila og hafa gaman af.

Tónlistarsmiðja með Vegar Vårdal:

Vegar hefur verið einn þekktasti alþýðufiðluleikari Noregs um árabil, en hann hefur jafnframt starfað sem kennari, tónskáld, útsetjari og upptökustjóri. Hann spilar á bæði fiðlu og harðangursfiðlu og hefur mikla breidd sem flytjandi. Hann hefur verið kennari við Ole Bull Akademíuna í 20 ár og hefur kennt marga af þekktustu tónlistarmönnum innan þjóðlagasenunnar í Noregi. Hann hlaut Hilmarsprisen árið 2020, en þau heiðursverðlaun hafa árlega verið veitt frá 1991 til framúrskarandi flytjenda og tónlistarmanna vegna framlags þeirra til norskrar þjóðlagatónlistar. 

Tónlistarsmiðja með Sigrúnu Kristbjörgu:

​​Brasilísk tónlistarkennsla er fjölbreytt og endurspeglar ríka menningararfleifð landsins. Hún sameinar evrópsk, afrísk og innfædd áhrif, sem birtast meðal annars í sambu, bossa nova og forró. Í kennslunni er oft lögð mikil áhersla á takt, hreyfingu og samspil, þar sem nemendur læra ekki aðeins að spila eða syngja heldur líka að finna tónlistina líkamlega.

Kammer fyrir framhaldshópana:

Kennsla í kammermúsík fyrir fiðlur krefst markvissrar vinnu með hlustun, ábyrgð og náið samspil. Þar sem enginn hljóðfæraleikari sinnir hefðbundnum undirleik verða allir þátttakendur virkir mótendur tónlistarlegs heildarsvipar. Nemendur læra að bera ábyrgð á intónasjón, jafnvægi og rytmískri nákvæmni, auk þess að þróa sameiginlega túlkun og fraseringu.

Í slíkri kennslu er lögð rík áhersla á samræmda bogatækni, tónmyndun og hljómblöndun, þannig að einstakar raddir renni saman í samfelldan hljóm. Jafnframt er unnið markvisst með samskipti innan hópsins, þar sem augnsamband, líkamsbeiting og gagnkvæm hlustun skipta lykilmáli. Þessi kennsluaðferð eflir sjálfstæði, tónlistarlegt sjálfstraust og leiðtogahæfni nemenda, auk þess sem hún styrkir skilning þeirra á kammermúsík sem lifandi og sameiginlegu listformi.

 

 

Þjóðdansar með Atla Frey Þjóðfræðing og þjóðdansara:

Þjóðdansar eru skemmtilegir og fjölbreyttir dansar sem henta öllum, bæði krökkum, foreldrum, ömmum og öfum. Í sumum dönsum er sungið á meðan það er dansað á meðan aðrir dansar eru dansaðir við hljóðfæraundirleik - og stundum bæði. Polkar, rælar, vikivakar, og skottísar eru allt íslenskir þjóðdansar. Sumir þeirra eru ekki bara íslenskir heldur líka samnorrænir og ferðuðust til Íslands með sjómönnum fyrir langa löngu.

 

Á þessu námskeiði ætlum við að læra grunnsporin í fjölbreyttum þjóðdönsum og para við þjóðdansatónlist sem við lærum á námskeiði hjá Vegar Vårdal. Þannig setjum við danstónlistina í samhengi og getum bæði spilað og dansað fyrir hvort annað.

 

Við munum m.a. læra eftirfarandi dansa:

 

- Ræll

- Skottís

- Hringdans

 

Dansaðir verða par- og hópdansar, og ef tími gefst munum við skoða norræna dansa í bland við íslenska.

​​

Vinsamlegast athugið!
Foreldrar eða forráðamenn bera ábyrgð á börnum sínum á meðan námskeiðinu stendur, bæði í kennslustundum og í frítíma. Kennarar munu vera uppteknir við kennslu og eru því ekki í aðstöðu til að sinna eftirliti eða umsjón með nemendum utan þess sem snýr beint að kennslunni. Við þökkum skilning og gott samstarf foreldra.

Þeir sem vilja gista á svæðinu:

- Tjaldsvæðið í Hveragerði​

- Hótel Örk

- The Greenhouse

Vaka_Bokasafn_0925_SunnaBen-9278 (1).jpeg
Vaka_salurinn2_0925_SunnaBen-0665.jpeg
Vaka_Bokasafn_0925_SunnaBen-9563_edited.
Vaka_salurinn2_0925_SunnaBen-0528 (1).jpeg
bottom of page