Skilmálar
Fiðlufjör er sjálfstætt starfandi tónlistarhátíð sem býður upp á metnaðarfullt og persónulegt nám.
Fiðlufjör slf.
Laufskógar 5
810 Hveragerði
S: 894-9943
Greiðsluskilmálar
Greiðslur námskeiðsgjalda
Við skráningu á námskeið Fiðlufjörs samþykkir viðskiptavinur greiðslu á námskeiðsgjaldi og við skráningu telst kominn á skuldbindandi samningur milli aðila.
Þegar þú hefur gengið frá skráningu á námskeiðskaupum hjá Fiðlufjör í gegnum heimasíðu skólans, hefur þú 14 daga til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu. Það á þó ekki við ef námskeið sem keypt er hefst innan 14 daga frá skráningu og kaupum þess.
Ef forföll verða á námskeiðinu verður að tilkynna með a.m.k 28 daga fyrirvara til að fá 50% endurgreiðslu. Eftir þann tíma er ekki hægt að endurgreiða vegna forfalla.
Systkinaafslættir
Afslættir til systkina eru mismunandi. Alltaf að greitt fullt gjald fyrir eitt barn, næsta barn fær 15% afslátt á sínu námsgjaldi.
Fiðlufjör áskilur sér rétt til að að breyta, fresta eða fella niður námskeið t.d. ef lágmarks þáttaka næst ekki á námskeiðið eða vegna forfalla starfsfólks. Kaupendum verður þá boðið að fá námskeiðsgjaldið endurgreitt.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna þessi byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Fiðlufjör leggur áherslu á að vernda persónuupplýsingar þátttakenda á fiðlunámskeiðum félagsins og vinna þær í samræmi við gildandi persónuverndalög.
Hvaða persónuupplýsingum er safnað
Við söfnum nauðsynlegum upplýsingum vegna skráningar á námskeið, svo sem:
- Nafni þátttakanda og/eða forráðamanns
- Netfangi og símanúmeri
- Aldri eða kennitölu barna
- Upplýsingum um greiðslur
Tilgangur vinnslu
Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar til að:
- halda utan um skráningu á námskeið,
- eiga samskipti við þátttakendur og forráðamenn,
- annast greiðslur og skipulag námskeiða.
Myndataka og myndbirting
Á meðan námskeiðum stendur kann að vera tekin ljósmyndun eða myndbandsupptaka í tengslum við starfsemi Fiðlufjar, til dæmis til að sýna stemningu á námskeiðum eða í kynningarefni félagsins.
Myndir eru aðeins notaðar í kynningar- og upplýsingaskyni fyrir starfsemi Fiðlufjar (t.d. á heimasíðu eða samfélagsmiðlum). Sérstakt tillit er tekið til barna og eru myndir ekki birtar nema það teljist viðeigandi.
Forráðamenn eða þátttakendur geta ávallt óskað eftir því að myndir af þeim eða barni þeirra séu ekki teknar eða birtar.
Geymsla upplýsinga
Persónuupplýsingar eru aðeins geymdar svo lengi sem nauðsynlegt er vegna reksturs námskeiða eða samkvæmt lögum.
Miðlun til þriðja aðila
Upplýsingum er ekki miðlað til þriðja aðila nema það sé nauðsynlegt vegna greiðslumiðlunar eða samkvæmt lagaskyldu.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingar eiga rétt á aðgangi að sínum persónuupplýsingum, leiðréttingu þeirra eða eyðingu. Einnig er hægt að andmæla vinnslu eða óska eftir takmörkun hennar.
Samband
Fyrirspurnir varðandi persónuvernd má senda á:
fidlufjor@gmail.com