top of page

FIÐLUFJÖR 2026

Fiðlufjör er skapandi og metnaðarfullt tónlistarnámskeið fyrir fiðlunemendur á öllum aldri sem hefur frá árinu 2017 eflt menningarlíf Suðurlands með fjölbreyttum tónlistarviðburðum, framúrskarandi kennslu og öflugu samfélagsstarfi.

Árið 2026 verður námskeiðið haldið í áttunda sinn og í fyrsta sinn alfarið í Hveragerði, í náinni samvinnu við Grunnskólann í Hveragerði og Hveragerðisbæ. Námskeiðið er fyrir alla fiðlunemendur óháð kennsluaðferð.

Hópur úrvalskennara koma að námskeiðinu á hverju ári bæði íslenskir og erlendir.
Nemendur fá ný og skemmtileg verkefni,taka þátt í hóptímum, spuna, tónlistarsmiðjum, kammer, uppbrot og spila á tónleikum.

Chrissie Telma Guðmundsdóttir

Listrænn stjórnandi og stofnandi

bottom of page